Kolbrun Yrr's profileRassaskoraPhotosBlogLists Tools Help

Kolbrún Ýrr Jónasdóttir

Occupation
Lists

Rassaskora

November 28

Staffapartíið heppnaðist vel en ég get ekki sett inn fleiri myndir í myndaalbúmið, ætla að prufa aðra aðferð til þess að sjá hvort þessar komi þó inn :)  testing one two, testing...
October 11

Oktoberfest

Rosarlega fær maður mikinn stuðning frá vinkonunum....hvað er svona fyndið við það að ég sé orðin grænmetisæta...og er ég pöþetik fyrir vikið..jahérna...ég er núna að borða uppáhaldsréttinn minn á Hressó sem eru eggjanúðlur með sætri chilisósu og ef ég myndi brosa meira, þá myndi efri hluti hausar míns detta af..ég myndi bara ekki fórna hárinu mínu fyrir svo mikið tilfinningashow!
Ég hef samt sem áður tekið þá ákvörðun að ég mun borða sjávarafurðir, bara svo ég held lífi og línum..ég ætla nú ekki að fara að hverfa !
Ekki samt í miklum mæli, bara svona kannski einu sinni til tvisvar í viku....
Annars, þá ætla ég bara að láta alla vita af Októberfestival-inu á Hressó miðvikudaginn og fimmtudaginn frá sex til lokunar en um helgina(föstudag+laugardag) frá sex til miðnættis!  Live tónlist, geðveik stemmning þar sem fólk getur líka setið á pallinum í góðum hita og fíling(búið að kaupa hitara og loka pallinn af) og kanna af 1,5 líter af bjór á 999 kr!  Ég verð allavega í fríi miðvikudag og fimmtudag en samt á svæðinu að sötra bjór hehe
Nóg af bloggi í bili...síja!
October 03

Smá innskot hérna...þar sem við allar vinkonurnar ákváðum að gera svona bloggsíðu, sérstaklega fyrir vinkonurnar okkar sem eru staðsettar erlendis, þá ætlast ég til þess að þær fari nú að vera öflugari í blogginu..ég nefni engin nöfn Ásta Sóley og Kata..en ætlast til þess að þær kveiki á perunni!!!!!!!!!!!!!!!!
September 19

Veggie speggie

Vitið menn, ég er ennþá grænmetisæta og það er bara ekkert svo erfitt ....reyndar er smá söknuður í bragðlaukunum en þeir hafa fengið sitt yfir ævina, svo ég vorkenni þeim ekki svo.  Reyndar er ég líka komin með smá flensu og auðvitað kenni ég kjötleysinu um en kannski er þetta bara tilviljun... ég líka hef aldrei verið hrifin af grænmeti og það er núna flóknara að borða þegar ég hef ekki eins mikið um að velja, but life´s a bitch :)
Ég hef enn bjórinn, sígaretturnar og mitt yndislega fólk að!  Var á nonnabitum og fékk mér grænmetisbátinn..hann var ekkert spes og ég kláraði hann ekki einu sinni.....hættu þessu Kollý.....meðan þú borðar ekki vini þína, þá er þetta ekki svo slæmt!
August 24

Stanslaust stuð hjá Kollý

Þessi helgi var ansi öflug! Ég vann helgina, þar sem menningarnæturhelvítið gekk yfir og svo skellti ég mér í sumarhús með Amin, Kötu, Völu og Óskari...myndirnar segja svo sem allt...búin að segja ferðasöguna á hinu blogginu mínu og nenni ekki að endurtaka mig...Annars var þetta alveg yndislegt og ég stóð mig eins og hetja all the way through...samt orðin slappari í drykkjunni hehe..kannski kominn tími á það
 
Photo 1 of 26
No list items have been added yet.