| Profil de Kolbrun YrrRassaskoraPhotosBlogListes | Aide |
|
28 novembre Staffapartíið heppnaðist vel en ég get ekki sett inn fleiri myndir í
myndaalbúmið, ætla að prufa aðra aðferð til þess að sjá hvort þessar
komi þó inn :) testing one two, testing... 11 octobre OktoberfestRosarlega fær maður mikinn stuðning frá vinkonunum....hvað er svona fyndið við það að ég sé orðin grænmetisæta...og er ég pöþetik fyrir vikið..jahérna...ég er núna að borða uppáhaldsréttinn minn á Hressó sem eru eggjanúðlur með sætri chilisósu og ef ég myndi brosa meira, þá myndi efri hluti hausar míns detta af..ég myndi bara ekki fórna hárinu mínu fyrir svo mikið tilfinningashow!
Ég hef samt sem áður tekið þá ákvörðun að ég mun borða sjávarafurðir, bara svo ég held lífi og línum..ég ætla nú ekki að fara að hverfa
Ekki samt í miklum mæli, bara svona kannski einu sinni til tvisvar í viku....
Annars, þá ætla ég bara að láta alla vita af Októberfestival-inu á Hressó miðvikudaginn og fimmtudaginn frá sex til lokunar en um helgina(föstudag+laugardag) frá sex til miðnættis! Live tónlist, geðveik stemmning þar sem fólk getur líka setið á pallinum í góðum hita og fíling(búið að kaupa hitara og loka pallinn af) og kanna af 1,5 líter af bjór á 999 kr! Ég verð allavega í fríi miðvikudag og fimmtudag en samt á svæðinu að sötra bjór hehe
Nóg af bloggi í bili...síja! 3 octobre Smá innskot hérna...þar sem við allar vinkonurnar ákváðum að gera svona
bloggsíðu, sérstaklega fyrir vinkonurnar okkar sem eru staðsettar
erlendis, þá ætlast ég til þess að þær fari nú að vera öflugari í
blogginu..ég nefni engin nöfn Ásta Sóley og Kata..en ætlast til þess að
þær kveiki á perunni!!!!!!!!!!!!!!!! 19 septembre Veggie speggieVitið menn, ég er ennþá grænmetisæta og það er bara ekkert svo erfitt
Ég hef enn bjórinn, sígaretturnar og mitt yndislega fólk að! Var á nonnabitum og fékk mér grænmetisbátinn..hann var ekkert spes og ég kláraði hann ekki einu sinni.....hættu þessu Kollý.....meðan þú borðar ekki vini þína, þá er þetta ekki svo slæmt! 24 août Stanslaust stuð hjá KollýÞessi helgi var ansi öflug! 8 août Ferðasaga RússlandsUhh..ég tók vél til Kaupmannahafnar, datt í það...svo...uhh...gaman allavega og svo svaf ég yfir mig næstum því þegar ég átti að taka vélina til Tallinn drulluþunn..rétt náðum rútunni og vorum fastar þar í 7 tíma, hittum Kötu og fengum okkur mat á georgírskum veitingarstað..hittum vinkonur Kötu þær Söru og Lavinju og skáluðum í bjór, ásamt því að puðra fyrir framan myndavélina..sváfum og svo bara vorum við fullar allann tímann svo ég man ekki meir...misstum jú næstum því af rútunni frá Tallinn og eyddum svo mörgum tímum í Tallinn en það var rosarlega fallegt þar...tókum svo eitt stykki flugvél til Köben þar sem við höfðum 3 tíma til þess að hanga og detta í það aftur..hitti Hönnu og Amin þar og svo bara beinustu leið heim!
Eftir ferðina lét ég dáleiða mig svo ég gæti hugsanlega rifjað upp mestu hápunktina í ferðinni og hér koma þeir helstu:
1: Þegar ég missti fyllinguna úr tönninni því ég var að leika mér með tannþráð(sem er verkfæri djöfulsins), þurfti að fara til rússneskan tannlækni og hann lét bráðabirgðafyllingu í staðinn sem mér tókst að fjarlægja 3 tímum seinna með harðfisksáti.
2. Strippshow með karlkynskanínum inn á vændiskonustað dauðans.
3. Allt þetta sushi át fyrir engan pening og geta einnig pantað mér sushi á næturklúbb á barnum seint um nóttina.
4. Leningklámstaðurinn þar sem rassgatið mitt var örugglega flassað á skjánum frammi þegar ég fór á klósettið og ýtti á vitlausan takka fyrir ákveðna stemningu sem hægt var að velja..Löng saga!
5. Þegar við fórum á útimarkað og ég fann hina fullkomnu gjöf fyrir pabba og snæfi, sem voru fígúrur á klósetti og þær hreyfast og gefa hljóð frá sér á meðan hægðalosun stendur yfir...BRILLIANT, nema stelpurnar voru ekki að fíla þetta þar sem sölumaðurinn var frekar myndarlegur.
6. Öll þessa þynnka, dauðdagurinn minn verður pís of keik!
Svo eru fleiri atriði sem ég vil ekki fara út í og halda þeim út af fyrir mig 1 juin Russland og egKomid sael og blessud....er ad skemmta mer konunglega i russki en timinn flygur ekkert sma! Eg trui thvi ekki ad eg se ad koma nuna a fostudaginn heim :( Vid forum til Tallinn annad kvold og verdum yfir nottina i rutuferd daudans, svo fljugum vid fra tallinn til danmerkur a fostudeginum og eydum nokkrum timum thar adur en vid skellum okkur i naesta flug. Thangad til aetla eg ad njota kotu til fulls, snokt snokt......Nenni ekki ad fara ad vinna a hresso daginn eftir en life's a bitch! Buin ad fa nog fri :) Eg mun vid fyrsta taekifaeri skella myndum fra russlandi inn a siduna! Kem med ferdasoguna seinna.... Russland og egKomid sael og blessud....er ad skemmta mer konunglega i russki en timinn flygur ekkert sma! Eg trui thvi ekki ad eg se ad koma nuna a fostudaginn heim :( Vid forum til Tallinn annad kvold og verdum yfir nottina i rutuferd daudans, svo fljugum vid fra tallinn til danmerkur a fostudeginum og eydum nokkrum timum thar adur en vid skellum okkur i naesta flug. Thangad til aetla eg ad njota kotu til fulls, snokt snokt......Nenni ekki ad fara ad vinna a hresso daginn eftir en life's a bitch! Buin ad fa nog fri :) Eg mun vid fyrsta taekifaeri skella myndum fra russlandi inn a siduna! Kem med ferdasoguna seinna.... 19 mai stress og ekkertGaman gaman, stutt í þetta núna..er bara að flytja og skipuleggja og vinna extra= Geri aðrir betur :) Samt frekar stressuð og hef ekki einu sinni tíma til þess að blogga, þannig bless 14 mai Föstudagurinn liðinn!Ég er komin í svo mikla æfingu! Núna er klukkan rúmlega átta á laugardagsmorgun og ég nýkomin frá vinnunni. Ég er alveg glaðvakandi og hefði alveg getað unnið í nokkra tíma til viðbótar, það er að segja ef það hefði verið eitthvað að gera. En þrátt fyrir mjög gott föstudagskvöld, þá var ekki nógu mikill brjáðlæði, svo þetta var ekki það gaman. Kúnnahópurinn var líka óathyglisverður þar sem enginn skandall var gerður, né slagsmál og ekkert eftirminnilegt dæmi gerðist. Við sátum bara þögul eftir vaktina meðan við sötruðum á bjórnum og reyndum að rifja upp eitthvað fífl eða furðudýr en ekkert kom upp. Engu að síður var þetta ekki leiðinlegt kvöld og við fengum að hreyfa okkur eitthvað. Líka yndislegur hópur að vinna, eins og oftast. Þórunn er líka búin í prófunum og þegar ég kom núna heim var allt hreint og fínt! Það er svo súrt að heyra í hreingerningarfaratækjunum þrífa fyrir utan. Mér líður allavega vel með það að allt hérna inni er hreint og núna, as i speak, þá er verið að laga til líka fyrir utan En það sem er framundan núna er bara spennandi og ég er að drepast úr tilhlökkun. Þetta sumar verður GRAND 12 mai ekkert spes röflFimmtudagur..ekkert miðast á við einn góðann vinnulausann fimmtudag Best að hætta þessu kjaftæði og byrja afslöppunina 7 mai AUKAVINNAN KOMIN :)Núna er Kollý að pæla mikið í fjármálunum þessa dagana, því mig langar að vera skuldlaus sem fyrst og til þess þarf ég að skipuleggja mig og finna leiðir til þess að græða sem mestan pening á sem stysta tíma. Ég er farin að sjá fyrir endalokunum núna, því ég ætla að vera dugleg á Hressó og minnka eyðslu + mér var boðið aukavinna núna í garðyrkjunni aftur hjá honum Þórði..just what i needed. Ég mun samt ekki byrja hjá honum fyrr en ég kem frá rússlandi, því ég er búin að lofa mér svolítið extra á Hressó fyrir ferðalagið en Ó MÆ GOT, alveg til í tuskið þegar ég sný heim. Þetta er líka svo hressandi vinna og ég sakna þess örlítið að vinna úti í náttúrunni :) Það eina sem ég ætla að biðja Þórð um, er að leyfa mér að sleppa við laufryksuguna, því ef ég fer í bakinu, þá er ég alveg ónothæf á báðum vinnustöðum og fæ ekkert veikindafrí! Þannig ég mun hafa minni tíma til þess að teikna en ég mun vera að losa mig við peningapúkann og þannig hafa meira inspöreisjön til þess að opna mig á jákvæðan hátt. Þetta kemur jú allt í ljós. Um að gera meðan maður hefur heilsuna að vinna eins og skepna og njóta þess seinna meir :) Var að koma af aukavakt af hressó og er frekar lúin og búinn á því. Núna ætla ég að skríða upp í rúm með dýrasta silfurdjásnið mitt(tölvuna mína) og sofna við eitthvað dvd...það hljómar eins og draumur :) Góða nótt og sofið vært eins og ég mun gera....hehe...og sofa út...slef...jamm...GEBBAÐ! 19 avril vinnuleiðiMikið rosarlega er ég orðin þreytt á þessari endalausri vinnu...þetta væri ekki svona slæmt ef það fengist gott staff í vinnu, en afþví okkur vantar allaf, þá þarf maður að hafa áhyggjur af þessum vinnumálum stanslaust og nær aldrei að hvílast algjörlega. Ég meina, núna er til dæmis auðvelda vinnuvikan mín og þá hugsar maður, allt í lagi að taka eitthvað auka..en núna eftir smá umhugsun, þá kláraði ég helgina sem var tough og mánudagurinn fór í smá aukavinnu og vinnufundur+aukavakt á þriðjudaginn, löng partývakt og erfið á miðvikudaginn, vakt á fimmtudaginn, kannski frí föstudag og laugardag og svo aukavakt á sunnudaginn...svo hefst erfiða vinnuvikan á mánudaginn.... Þetta er svosem ekki svo mikið fyrir marga en ég er bara búin að vinna hérna svo lengi og þegar ég er ekki í vinnunni, þá er ég samt í vinnunni. Ég er bara ekki að gera svo margt annað og Hressó er bara búið að stjórna mér síðan staðurinn opnaði..púfff....en samt...væl væl væl..Ég verð að fara að hætta að væla svona hehe..ég bara nenni ekki neinu..strax og þessi staffamál batna, þá líður mér örugglega betur. Að minnsta kosti þá hef ég vinnu og þetta er bara alls ekki svo slæmur vinnustaður. Maður getur bara orðið svolítið pirraður þegar maður hefur unnið á sama stað lengi! Ég hætti hér í haust og drulla mér út... Vonandi verð ég búin að rétta fjárhaginn fyrir þann tíma, því annars verð ég Hressóþræll áfram og mín síðustu orð verða" það gera 300krónur" 18 avril NágrannahelvítiÉg finn fyrir blóðþorsta núna í garð nágrannans! Hún er svo bitur að það spreyjast um alla sameignina þegar hún gengur þar um. Núna er hún farin að banka á hjá okkur til þess að athuga hvort við ætlum ekki að þrífa hana og ég ákvað að svara ekki en þá hringir helvítis beljan í mig og talar inn á talhólfið mitt. Málið er þannig að ég er oftast vön því að taka þetta á mánudögum, því þetta lendir alltaf á vinnuhelginni minni þar sem ég er dauð, en sameignin look-ar frekar illa, þannig hún getur ekki staðið á sér og er örugglega að fara yfir um þarna fyrir ofan hehe...ég hata nágranna!!!!!!!!!!!!!!!!! 16 avril djammið í reykjavíkVá, gærkvöldið var klikkað á Hressó! Fyrst bilaði annar geislaspilarinn og svo snöppuðu tveir guttar við dyraverðina og það braust út í blóðug slagsmál þar sem við enduðum með því að kalla fram lögregluna, því annars hefði þetta aldrei klárast. Samt var rólegt að gera seinnipartinn en salan var samt frekar mjög góð. Það besta við þetta var að meðan slagsmálin stóðu yfir, þá voru allir dyraverðirnir að reyna að díla við þessa slagsmálagutta og ég og annar bussinn þurftum að skipta okkur af öðrum kúnna og fleygja honum út= en það gekk eins og í sögu. Ég á það til að vera mjög sannfærandi hehe..núna er ég bara útkeyrð á leiðinni aftur í fun-ið hehe..bless í bili 15 avril fyrsta galleríið mitt :)Jæja, nú er ég farin að blogga á tveimur stöðum og loksins komin með stað fyrir myndirnar mínar..nú verð ég að fara að setja allt í gang með teikningarnar mínar svo ég geti haft svona örlítið gallerí og hvatningu...blablablalbalajbla |
|
|